Innlent

Fréttamynd

Upp­færslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann

Ýmislegt er hægt að gera til að vernda rafhlöður í símum, að sögn sérfræðings, en uppfærslur eiga það til að hægja á tækjum og stytta rafhlöðutímann. Hneykslismál hjá einum stærsta framleiðanda heims varð til þess að hann bætti ráð sitt.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Eldri þjóð þýðir öðru­vísi hús­næði

Mikilvægt er að aðlaga húsnæðisuppbyggingu næstu ára að öldrun þjóðarinnar sem mun skila fleiri einstæðingum á húsnæðismarkað að mati hagfræðings HMS. Framkvæmdastjóri Arnarhvols segir skipulagsmál geta valdið því að uppbygging taki allt í allt 50 ár.

Innlent
Fréttamynd

Rann­sókn hófst eftir til­kynningu starfs­manns

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar.

Innlent
Fréttamynd

„Af öllum vondu málum ríkis­stjórnarinnar finnst mér þetta það versta“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við frumvarpi félagsmálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, sem nú er rætt í annarri umræðu á Alþingi. Hún telur að það muni leiða til sjálfvirkrar aukningar útgjalda ríkissjóðs og minni hvata til atvinnuþátttöku. „Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu frumvarpi og af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Kröfunni hafnað og starfs­mönnunum sleppt

Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu Lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum í tengslum við rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri. Lögreglan á Suðurlandi ætlar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar.

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldu konunnar grunaði ekkert

Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. 

Innlent
Fréttamynd

Borgar­stjórn vill að börn fái frítt í Strætó

Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.

Innlent
Fréttamynd

Grafið í há­spennu­streng í Urriðaholti

Grafið var í háspennustreng í Urriðaholti í Garðabæ klukkan 10:40 í morgun með þeim afleiðingum að rafmagn fór af öllu Urriðaholti og Kauptúni. Umferðarslys varð á meðan rafmagnslaust var.

Innlent
Fréttamynd

Fara fram á gæslu­varðhald yfir starfs­mönnum Hraun­búða

Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum í tengslum við andlát á stofnuninni í síðustu viku. Gæsluvarðhaldskrafan verður tekin fyrir í hádeginu en lögregla vill halda sakborningunum fram á föstudag.

Innlent
Fréttamynd

Ekki stað­fest að veikindi fimm tengist listeríu í salati

Reykjavíkurborg hefur fengið tilkynningu um veikindi fimm einstaklinga í kjölfar þess að listería fannst í salati við reglubundna sýnatöku í framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi. Ekki hefur verið staðfest að listería hafi olli veikindunum en það verður aðeins gert með sýnatöku.

Innlent
Fréttamynd

Á­rekstur í Urriðaholti

Árekstur varð á gatnamótum Urriðaholtsstrætis og Kauptúns í Garðabæ um klukkan 11 í morgun. Tveir eru sagðir slasaðir en þó er talið að um minni háttar áverka sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Mið­flokkurinn býður fram í Vest­manna­eyjum

Miðflokkurinn ætlar að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu en flokkurinn lýsir nú eftir áhugasömum til að taka sæti á lista flokksins í Eyjum fyrir kosningarnar í vor.

Innlent
Fréttamynd

Kona kastaði flösku í höfuð manns

Kona á sextugsaldri hefur verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með því að kasta glerflösku í höfuð manns á veitingastaðnum Ölveri í Glæsibæ aðfaranótt laugardags í byrjun febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Öðru em­bætti falið að rann­saka and­látið

Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum.

Innlent
Fréttamynd

Rétt var að svipta Guð­mund Karl lækningaleyfinu

Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun landlæknis um að svipta Guðmund Karl Snæbjörnsson starfsleyfi sem læknir. Hann hafi framið skýlaus lögbrot með því að halda áfram að auglýsa sig sem lækni eftir að hann var sviptur leyfinu í fyrra.

Innlent