Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Knattspyrnumaðurinn Aron Sigurðarson hefur skorað 20 mörk í tuttugu leikjum á tímabilinu með KR. Markametið er innan seilingar en hann ætlar að skora þrjátíu mörk. Íslenski boltinn 25.8.2026 10:01
Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sérfræðingar Stúkunnar fóru ekki mjúkum höndum um stjórn Stjörnunnar og leikmenn liðsins í kjölfar viðtals við fyrrverandi þjálfara liðsins, Jón Þór Hauksson, sem sagði frá erfiðri reynslu sinni á annars stuttum tíma í starfi. Íslenski boltinn 25.8.2026 07:59
Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Fram vann 3-4 sigur í frábærum leik gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli í 20. umferð Bestu deildar karla í gær. Framarar skoruðu öll fjögur mörk sín í fyrri hálfleik, Blikar bitu frá sér í seinni en gerðu ekki nóg til þess að jafna leikinn. Mörkin úr þessum bráðfjöruga leik má sjá neðar í fréttinni. Íslenski boltinn 25.8.2026 07:31
Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn 24.8.2026 18:31
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24.8.2026 09:02
Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna. Íslenski boltinn 23.8.2026 18:32
Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Gunnar Vatnhamar lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking þegar liðið lagði Val, 2-0, í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Færeyingurinn átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum í leikslok. Íslenski boltinn 23.8.2026 21:40
„Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með að hafa sótt þrjú stig norður þegar lið hans sigraði KA 5-3 á Greifavellinum á Akureyri. Hann fór vel yfir leik dagsins skömmu eftir lokaflaut. Íslenski boltinn 23.8.2026 21:30
Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan KR vann öruggan 5-3 sigur á KA á Greifavellinum á Akureyri í 20. umferð Bestu deildar karla. Leikurinn var hin mesta skemmtun en staðan var 4-2 í hálfleik. Íslenski boltinn 23.8.2026 16:15
„Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ KA beið lægri hlut gegn KR á Greifavellinum á Akureyri í dag í 20. umferð Bestu deildar karla í fjörugum leik. Lokatölur 5-3 en KR leiddi 4-2 í hálfleik. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymi KA á dögunum og stýrði liðinu í fyrsta sinn í dag sem aðalþjálfari ásamt Hallgrími Jónassyni. Hann er ánægður með að vera mættur aftur á hliðarlínuna og fór yfir sína sýn á leikinn. Íslenski boltinn 23.8.2026 20:29
Haukar komnir upp í Lengjudeildina Eftir sjö ár í 2. deild leika Haukar í Lengjudeild karla á næsta tímabili. Þetta var ljóst eftir 5-2 sigur á Dalvík/Reyni á Ásvöllum í dag. Íslenski boltinn 23.8.2026 19:46
Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark leiksins þegar Keflavík fékk ÍBV í heimsókn í 20. umferð Bestu deild karla í dag. Þetta var annar sigur Keflvíkinga í röð. Íslenski boltinn 23.8.2026 16:15
Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum ÍA og FH gerðu 1-1 jafntefli í 20. umferð Bestu deildar karla. Gestirnir komust yfir í fyrri hálfleik en Gísli Eyjólfsson jafnaði metin í síðari hálfleik með skalla. Fleiri urðu mörkin ekki og jafntefli niðurstaðan. Íslenski boltinn 23.8.2026 16:15
Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Stjarnan vann sannfærandi 4-2 sigur þegar liðið fékk Þór í heimsókn í Miðgarð í Garðabæinn í 20. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 23.8.2026 16:15
Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Grótta er komin með annan fótinn upp í Bestu deild kvenna en gríðarleg spenna er um 2. sætið í Lengjudeildinni. Haukar, KR, HK og Selfoss keppast um það. Íslenski boltinn 22.8.2026 18:43
Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Njarðvík styrkti stöðu sína í baráttunni um að komast í umspil um sæti í Bestu deild karla með 4-0 heimasigri á Völsungi í 20. umferð Lengjudeildarinnar í dag. Íslenski boltinn 22.8.2026 18:17
Ísfirðingar geta andað léttar Vestri kvaddi líklega fallbaráttuna í Lengjudeild karla fyrir fullt og allt með 2-0 sigri á Leikni á Ísafirði í dag. Íslenski boltinn 22.8.2026 17:15
HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík HK blandaði sér í toppbaráttu Lengjudeildar karla með 3-0 sigri gegn liði Þróttar í 20. umferð. Fylkir vann 5-1 sigur gegn Grindavík á sama tíma. Íslenski boltinn 22.8.2026 15:57
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær og óvænt úrslit komu upp úr þeim öllum. Mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 22.8.2026 12:01
„Kærkomið að fá eitt svona mark“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma. Íslenski boltinn 21.8.2026 22:02
„Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Valur kom sér upp úr fallsæti Bestu deildar kvenna með 1-0 sigri á Þór/KA á VÍS vellinum á Akureyri í kvöld. Íslenski boltinn 21.8.2026 21:01
„Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ „Mér fannst við alveg verðskulda þennan sigur,“ sagði Telma Ívarsdóttir, markvörður Víkinga, eftir glæstan 0-1 sigur gegn FH í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 21.8.2026 20:34
Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Eiður Smári Guðjohnsen stýrði í dag sinni fyrstu æfingu hjá KA. Hann ávarpaði hópinn á ensku fyrir æfinguna og einnig eftir hana. Íslenski boltinn 21.8.2026 17:51
Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Víkingar unnu í kvöld gífurlega mikilvægan sigur gegn FH í Kaplakrika, en liðið er í harðri fallbaráttu. Fyrsti sigur Víkinga síðan í lok maí og FH að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta sinn á tímabilinu. Íslenski boltinn 21.8.2026 17:15
Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Valur vann dramatískan sigur á Þór/KA norður á Akureyri í 17. umferð Bestu deildar kvenna. Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði eina mark leiksins undir lokin. Íslenski boltinn 21.8.2026 17:15