Fréttir
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 334 ›
Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Brunavarnir Árnessýslu eru enn að störfum eftir að eldur kviknaði í hrúgu af trjákurli á Selfossi og gert er ráð fyrir að slökkvistörf haldi áfram fram á nótt. Tugir slökkviliðsmanna hafa komið að verkefninu. Innlent 21.7.2025 13:42
Nítján látnir eftir að herflugvél brotlenti á skólabyggingu Að minnsta kosti nítján eru látnir eftir að herflugvél í eigu bangladesska hersins brotlenti á skólabyggingu í höfuðborg landsins. Talið er að yfir hundrað manns séu slasaðir. Erlent 21.7.2025 12:38
Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Formaður utanríkismálanefndar segir sjálfsagt mál að utanríkismálanefnd komi saman og ræði stefnu Íslands í Evrópumálum, eftir heimsókn forseta framkvæmdastjórnar ESB hingað til lands í liðinni viku. Trúnaður ríkir um það sem nefndarmanna fer á milli, nema annað sé ákveðið. Innlent 21.7.2025 12:10
Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Maður stal bíl inni á haftasvæði Keflavíkurflugvallar síðdegis í gær, ók honum um flughlaðið og ógnaði flugumferð. Ók hann meðal annars inn á flugbraut þar sem flugvél var að undirbúa flugtak. Innlent 21.7.2025 12:10
„Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ Mælt er með því að takmarka mikla áreynslu utandyra vegna talsverðrar gasmengunar sem hefur gert vart við sig á höfuðborgarsvæðinu það sem af er dagi. Lungnalæknir segir að hraust fólk yfir tvítugu þurfi ekki að hafa áhyggjur af menguninni. Innlent 21.7.2025 12:08
„Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Rektor Háskóla Íslands segir menntamorð eiga sér stað á stríðssvæðum en einnig í Bandaríkjunum. Mikilvægt sé að verða ekki að kröfum bandarískra fjármagnara sem vilja ekki að kynjajafnrétti og loftslagsáhrif séu rannsökuð. Margt sé á döfinni í háskólanum. Innlent 21.7.2025 12:01
Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Ferðaþjónustuaðili segir aðstæður á gossvæðinu á Reykjanesi vera með besta móti, svo minni á fyrsta eldgosið við Fagradalsfjall frá árinu 2021. Auðvelt sé að fara með ferðamenn að gosinu en bílastæði séu sneisafull og líklegt að bregðast þurfi við. Innlent 21.7.2025 12:00
Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Í hádegisfréttum fjöllum við um hina miklu mengun sem legið hefur yfir höfuðborgarsvæðinu það sem af er degi. Innlent 21.7.2025 11:37
Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Fjórir af sex köttum sem saknað er eftir eldsvoða í íbúð á Tryggvagötu aðfaranótt laugardags eru fundir. Tveggja er enn saknað og vinna sjálfboðaliðar að leitinni. Innlent 21.7.2025 11:03
Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Í morgun hafa mælistöðvar á höfuðborgarsvæðinu mælt há gildi brennisteinsdíoxíðs, og hafa hæstu tíu mínúta gildi farið upp í og yfir 2000 míkrógröm á rúmmeter. Eru þetta hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs sem mælst hafa frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesskaga. Innlent 21.7.2025 10:20
Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Fjölmennt lið slökkviliðsmanna frá Brunavörnum Árnessýslu hefur unnið að því frá klukkan 14 í gær að ráða niðurlögum elds sem kom upp í stóru fjalli af trjákurli á athafnasvæði Íslenska gámafélagsins við Hrísmýri á Selfossi. Innlent 21.7.2025 09:13
Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Öll störf almennra hópa í garðyrkju hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fellur niður í dag vegna gosmengunar. Frá þessu er greint í skilaboðum frá Vinnuskólanum. Innlent 21.7.2025 09:04
Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Neysla á ketamíni hefur aukist verulega á síðustu árum og síaukið magn mælist í fráveitu. Lögregla hefur lagt hald á yfir þrjúhundruðfalt meira magn af efninu það sem af er ári en allt árið 2022. Innlent 21.7.2025 08:38
Rússar opnir fyrir friðarviðræðum en hyggist ekki slá af kröfum sínum Stjórnvöld í Rússlandi segjast opin fyrir friðarviðræðum við Úkraínumenn en hyggjast hins vegar ekkert slá af kröfum sínum um yfirráð yfir hernumdum svæðum og tryggingu fyrir því að Úkraína gangi ekki í Atlantshafsbandalagið. Erlent 21.7.2025 07:20
Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til eftir að sást til ungmenna að renna sér niður sirkustjaldið við Háskóla Íslands. Innlent 21.7.2025 06:52
Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni mallar áfram og enn er virkni í tveimur gígum. Gasmengun brennisteinsdíoxíðar mælist á suðvesturhorninu, ásamt gosmóðu. Innlent 21.7.2025 06:39
Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Sýrlendingar búsettir hér á landi segja þjóðernishreinsun eiga sér stað í borginni Sweida. Ríkisstjórn landsins ætli að útrýma minnihlutahópum og hafi brotið gegn vopnahléi í gær. Innlent 20.7.2025 23:44
Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Einn fjögurra katta sem leitað hefur verið að í dag er fundinn. Fjórir kettir týndust eftir bruna í íbúðahúsnæði í Tryggvagötu í morgun. Það er í lagi með köttinn. Innlent 20.7.2025 23:31
Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Sérsveit ríkislögreglustjóra hafði afskipti af útilegu nemenda við Menntaskólann í Reykjavík við Laugarvatn. Óboðnir gestir höfðu látið sjá sig og neitað að fara. Þeir sögðust vera vopnaðir hnífum. Innlent 20.7.2025 22:14
Kviknaði í haug af timburkurli Brunavarnir Árnessýslu eru við slökkvistörf á athafnasvæði Íslenska Gámafélagsins á Selfossi. Þar kviknaði eldur í stórum haug af timburkurli. Innlent 20.7.2025 21:33
„Þetta er ekki eiturgas“ Dæmi er um að fólk loki sig af með loftræstitæki vegna gosmóðunnar sem legið hefur yfir höfuðborgarsvæðinu í dag. Sérfræðingur hjá umhverfis- og orkustofnun vill að farið sé varlega hvað varðar íþróttaæfingar barna. Innlent 20.7.2025 21:31
Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Íbúar á Hrafnistu við Sléttuveg í Reykjavík eru sérstaklega kátir þessa dagana því til að lífga upp á tilveru fólksins var ákveðið að breyta gráum ljótum vegg fyrir utan heimilið í glæsilegt útilistaverk með íslenskri náttúru, fjöllum, sjó, verbúð, kúm og sjómanni á árabáti. Innlent 20.7.2025 20:04
„Lífið er miklu meira en peningar“ Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur vakið mikla athygli, annaðhvort fyrir vasklegan framgang í þágu hagsmuna almennings eða þá hagsmuna kvótakónga og stórútgerðarinnar. Það fer eftir því hvernig litið er á umtalaða hækkun veiðigjalda. Hann kemur úr auðugri fjölskyldu, hefur verið virkur á hlutabréfamarkaði og meðal annars fjárfest í sjávarútvegsfyrirtækjum. Hann segir ástríðuna alltaf þá sömu, að hjálpa börnum og unglingum. Lífið sé svo miklu meira en peningar. Innlent 20.7.2025 19:06
Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Neysla á ketamíni hefur aukist verulega á síðustu árum og síaukið magn mælist í fráveitu. Lögregla hefur lagt hald á yfir þrjúhundruð falt meira magn af efninu það sem af er ári en allt árið 2022. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Sýnar. Innlent 20.7.2025 18:15
Drúsar mótmæla við sendiráðið Drúsar búsettir á Íslandi mótmæla nú fyrir utan bandaríska sendiráðið við Engjateig. Mótmælin hafa farið friðsamlega fram en mikil átök hafa geisað á heimaslóðum drúsa í Sýrlandi sem hafa kostað marga lífið. Innlent 20.7.2025 17:49
Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn í Hlíðahverfi fyrir að stinga öryggisvörð í brjóstið. Innlent 20.7.2025 17:19
Fjórir kettir týndust í brunanum Gæludýrasamtökin Dýrfinna lýsa eftir fjórum köttum sem týndust í brunanum við Tryggvagötu í morgun. Innlent 20.7.2025 16:54
Hátt í sjötíu drepnir í biðröð eftir mat Að minnsta kosti 67 íbúar á Gasa voru drepnir í skotárás Ísraelshers meðan þeir biðu í röð eftir matarskammti við matarstand Sameinuðu þjóðanna í norðurhluta Gasa í dag. Erlent 20.7.2025 16:37
Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Kona sem var tilnefnd „framúrskarandi ungur Íslendingur“ síðasta haust hefur nú formlega hlotið íslenskan ríkisborgararétt. Henni var brottvísað til Venesúela í vetur en er frá Suweida í Sýrlandi, þar sem blóðug átök hafa geisað síðustu viku. Hún segir margt líkt milli Suweida og Íslands. Innlent 20.7.2025 16:02
Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Maður á sextugsaldri sem var handtekinn eftir hnífstunguárás á Austurvelli í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 20.7.2025 15:33