Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Tillaga að breytingum á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) verður lögð fram á næstu dögum, að sögn forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Breytingunum er ætlað að bregðast við háu raforkuverði í Evrópu. Viðskipti erlent 20.3.2026 10:12
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. Viðskipti erlent 19.3.2026 09:48
Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Forsvarsmenn fyrirtækisins Nvidia kynntu í gær nýjung hvað varðar grafík fyrir tölvuleiki. Hún kallast DLSS 5 og er ætlað að bæta lýsingu í tölvuleikjum og gera grafík þeirra raunverulegri. Hún þykir þó strax töluvert umdeild. Viðskipti erlent 17.3.2026 14:47
Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Bandarískur tæknivefmiðill rak reyndan blaðamann eftir að miðillinn birti grein með tilvitnunum í raunverulega manneskju sem gervigreind skáldaði upp. Blaðamaðurinn bar því við að hann hefði verið veikur og vansvefta þegar hann gerði „alvarleg mistök“. Viðskipti erlent 3.3.2026 13:01
Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu. Viðskipti erlent 3.3.2026 11:33
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. Viðskipti erlent 1.3.2026 15:29
Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt. Viðskipti erlent 27.2.2026 00:06
Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega. Viðskipti erlent 26.2.2026 14:45
Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Fyrirtæki í Rússlandi hafa notað bresk aflandssvæði til þess að komast í kringum þvingunaraðgerðir. Alþjóðleg samtök gegn spillingu telja að viðskipti fyrir allt að átta milljarða dollara hafi farið þessa leið frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 25.2.2026 10:34
Trump hækkar tolla á öll lönd Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hækkað tolla á öll lönd í heiminum úr tíu prósentum í fimmtán. Hann greinir frá á Truth Social. Viðskipti erlent 21.2.2026 16:11
Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi í dag úr gildi stóran hluta þeirra tolla sem Donald Trump forseti hefur lagt á innfluttar vörur síðasta árið. Þeir tollar sem byggja á neyðarlögum eru taldir ólöglegir. Viðskipti erlent 20.2.2026 15:08
Einn stofnenda ASOS fannst látinn Quentin Griffiths, einn stofnandi breska netverslunarrisans ASOS, er látinn, 58 ára að aldri. Hann fannst látinn eftir að hafa fallið af svölum lúxushótels í Taílandi fyrr í mánuðinum. Viðskipti erlent 20.2.2026 13:39
Bar vitni í dómsmáli sem gæti dregið dilk á eftir sér Mark Zuckerberg, forstjóri Meta, bar í gær vitni í fyrsta sinn í dómsmáli þar sem fjallað er um ávanabindandi samfélagsmiðla og tækni. Réttarhöldin gætu haft mikil áhrif á rekstur samfélagsmiðla á næstu árum. Viðskipti erlent 19.2.2026 13:55
Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Lyfjastofnun Bandaríkjanna segist nú ætla að taka umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um markaðsleyfi fyrir nýja flensusprautu til skoðunar eftir allt saman. Upphafleg ákvörðun stofnunarinnar um að neita að taka umsóknina fyrir olli fjaðrafoki. Viðskipti erlent 18.2.2026 14:36
Íhuga að fresta útgáfu PS6 um allt að tvö ár Skortur og mikil verðhækkun á vinnsluminnisflögum, sem að mestu má rekja til gífurlegrar eftirspurnar frá gervigreindarfyrirtækjum, gæti leitt til þess að útgáfu næstu kynslóðar PlayStation-leikjatölvunnar verði frestað um allt að tvö ár. Forsvarsmönnum Sony hefur víst gengið illa að verða sér úti um svokallað Dram-vinnsluminni. Viðskipti erlent 18.2.2026 10:04
Hefja aftur viðræður við Paramount Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery segja viðræður við eigendur Paramount Skydance um yfirtöku hafnar á nýjan leik. Það er eftir að eigendur Paramount hækkuðu kauptilboð sitt en fyrirtækið hefur staðið í baráttu við Netflix um að kaupa WBD eða hluta félagsins. Viðskipti erlent 17.2.2026 14:27
ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fyrirskipað rannsókn á kínversku netversluninni Shein. Rannsóknin mun meðal annars miða að því að varpa ljósi á umfang sölu vara sem standast ekki Evrópulög og „ávanabindandi“ viðskiptahætti. Viðskipti erlent 17.2.2026 11:58
Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum. Viðskipti erlent 17.2.2026 09:31
Funda um stofnun innlendrar greiðslumiðlunar Stjórnendur banka og fjármálafyrirtækja á Bretlandseyjum munu funda á fimmtudaginn um stofnun nýrrar innlendrar stofnunar, sem myndi sjá um greiðslumiðlun í landinu ef vandamál koma upp með miðlun Visa og Mastercard. Viðskipti erlent 17.2.2026 07:06
Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Eitt stærsta flutningsfyrirtæki heims skipti út stjórnarformanni sínum í dag eftir að hann var ítrekaður nefndur í Epstein-skjölunum svonefndu. Hneykslismál formannsins settu viðskiptasamninga fyrirtækisins í uppnám. Viðskipti erlent 13.2.2026 15:27
Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Heimsendingarfyrirtækið Wolt hefur í fyrsta skipti ráðið sendla sem starfsmenn í Finnlandi eftir að dómstóll skikkaði það til þess. Sendlarnir fá þó hvorki greitt á milli sendinga né fyrir að sendast á eigin bílum. Viðskipti erlent 13.2.2026 14:48
Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Bandaríska lyfjastofnunin hafnaði því að taka fyrir umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um leyfi fyrir nýja tegund flensusprautu. Fyrirtækið segist ætla að hætta fjárfestingu í öðrum lyfjum ef það getur ekki treyst á að koma þeim inn á bandarískan markað. Viðskipti erlent 13.2.2026 13:52
Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Hæstiréttur Bretlands hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki megi nota orðið „mjólk“ til þess að auglýsa jurtavörur. Aðeins megi nota orðið yfir dýraafurðir. Viðskipti erlent 12.2.2026 13:41
Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Ofurskálin virðist festa sig betur í sessi sem íþrótta- og menningarviðburður hér á landi með hverju árinu sem líður. Almannatengill segir auglýsingarnar í kringum viðburðinn, sem verði súrari með hverju árinu, geta sagt okkur ýmislegt um tíðarandann hverju sinni. Viðskipti erlent 10.2.2026 07:46