Valur hefur viðræður við annan þjálfara Anton Ingi Leifsson skrifar 23. september 2019 12:30 Ólafur Jóhannesson á hliðarlínunni fyrr í sumar. vísir/daníel
Valur hefur hafið viðræður við annan þjálfara um að taka við liðinu af Ólafi Jóhannessyni en Fótbolti.net greinir frá þessu í morgun. Valur er í 9. sæti Pepsi Max-deildarinnar en Ólafur hefur stýrt liðinu síðustu fimm ár með mögnuðum árangri. Hann hefur unnið deildina tvívegis og bikarinn jafn oft. Edvard Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, tjáði sig um orðróminn í samtali við Fótbolta.net í dag. „Við erum að skoða málin í víðu samhengi, það er of snemmt að segja til um í dag hvað verður. Við munum líklega vera með skýrari svör síðar í vikunni," sagði Börkur við Fótbolta.net. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Ólafs hjá Valsliðinu en Heimir Guðjónsson og Ágúst Gylfason hafa verið þrálátlega orðaðir við starfið, þá sér í lagi Heimir. Heimir greindi frá því viðtali við Morgunblaðið á dögunum að hann gæti komið heim en hann varð bikarmeistari með HB í Færeyjum um helgina. Ágúst er enn við störf í Kópavoginum en sagði eftir leik ÍBV og Breiðabliks í gær að hann væri búinn að setjast niður með stjórn Blika. Þó væri óvíst hvað framhaldið yrði. Valur á einn leik eftir í Pepsi Max-deildinni en liðið mætir HK um komandi helgi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bjóða dómurum í WNBA ókeypis LASIK aðgerðir Körfubolti Munkur slær í gegn á Opna breska Golf „Búin að segja við Sölva síðan ég kom að hann á mig inni í níunni“ Sport „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ Íslenski boltinn „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Íslenski boltinn „Hvert færi og hver sókn var nánast bara mark“ Sport Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Íslenski boltinn Jota í frægðarhöll Úlfanna Fótbolti Uppgjörið: Víkingur R. - Malisheva 8-0 | Víkingar gjörsigruðu gestina Fótbolti Körfuboltakvöld í Boston: Nablinn tók viðtal við Ice Cube og sættist við Pargo Körfubolti Fleiri fréttir „Bikarleikurinn sat aðeins í mönnum“ „Skemmtilegt og erfitt að spila á móti Fram“ Uppgjörið: Afturelding - Fram 1-1| Allt jafnt í Mosó Jón Páll aðstoðar Einar Leikur Grindavíkur færður vegna gossins Nýir erlendir leikmenn halda áfram að streyma í botnliðið Elvis snúinn aftur KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Árni farinn frá Fylki „Mikið undir fyrir bæði lið“ FHL bætir tveimur bandarískum við hópinn Sjáðu hvernig FH rassskellti KA-menn í Krikanum í gær Systkinin leikjahæst: „Heiður að taka fram úr alvöru goðsögnum“ Uppgjör: FH - KA 5-0 | FH pakkaði KA saman Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Lárus Orri byrjaður að bæta við sig „Við erum að gera eitthvað rétt“ Á góðum stað fyrir mikil átök Safna stuðningsfólki í fría rútu með fljótandi veigar Shaina boðin hjartanlega velkomin aftur í Hamingjuna Sólarbann, freistingar og kokhraustir Albanir Óli Jóh skellihló að viðtali Heimis Stúkumenn ekki sammála um hvort Valsmenn geti orðið meistarar Sjá meira