Varalið ÍBV komst í 8 liða úrslit bikarsins Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. desember 2014 20:10 Sigurður Bragason var lengi leikstjórnandi ÍBV. vísir
Þrótti, sem leikur í 1. deild karla í handbolta, mistókst að verða síðasta liðið til að tryggja sér farseðilinn í átta liða úrslit Coca Cola-bikars karla í kvöld. Þróttarar virtust eiga nokkuð þægilegt verkefni í kvöld, en þeir mættu ÍBV 2 í Eyjum. Með því spilar t.a.m. gamla kempan Sigurður Bragason sem lagði skóna á hilluna fyrir síðasta tímabil. Gestirnir úr Laugardalnum, sem spiluðu í gær í 1. deildinni og þar með tvo leiki á tveimur dögum, voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 11-8. Hvort þreytan eftir flottan sigur þeirra á ÍH í 1. deildinni í gær hafi sagt til sín skal ósagt látið, en ÍBV 2, sem er ekki hluti af deildakeppni HSÍ, sneri við taflinu í seinni hálfleik og innbyrti eins marks sigur, 21-20. Davíð Óskarsson var markahæstur heimamanna með sjö mörk en Viktor Jóhannsson skoraði átta fyrir Þrótt. Það er morgunljóst að ÍBV 2 verður liðið sem allir vilja mæta í átta liða úrslitunum, en þangað eru komin úrvalsdeildarliðin FH, Akureyri, Afturelding, ÍBV, Stjarnan, Valur og Haukar.Mörk ÍBV 2: Davíð Óskarsson 7, Sigurður Bragason 6, Daði Magnússon 4, Daði Pálsson 2, Sævald Páll Hallgrímsson 1, Sæþór Garðarsson 1.Mörk Þróttar: Viktor Jóhannsson 8, Leifur Óskarsson 3, Logi Ágústsson 3, Ari Oddsson 3, Úlfur Kjartansson 1, Eyþór Snæland 1, Hallur Sigurðsson 1.
Íslenski handboltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira